Góðan dag... allt orðið fullt hjá okkur og lokað fyrir alla skráningu...
Upplýsingar eignar  -  Kvíarhóll
Almennar upplýsingar
 Nafn  Kvíarhóll  Svæði  Suðurland
 Lýsing


Góðan dag og velkomin á ferdavagnar.is

27.08.2023

Því miður er allt orðið fullt hjá okkur og ekki hægt að afgreiða neitt af biðlista. 

Þau ykkar sem eigið bókað pláss getið farið að koma með vagna í geymslu.


Minnum á að taka verður af gaskúta og aftengja rafgeyma, og einnig að gera ráðstafanir svo ekki sé hætta á vatnslagnir frostspryngi.



24.07.2023

Við höfum opnað fyrir forskráningu fyrir þá sem hafa verið hjá okkur undanfarin ár. Verðið er 5.600 á fermetra fyrir veturinn. Ganga þarf frá skráningu og greiðslu hér á ferdavagnar.is til að pláss sé öruggt.

Lokum fyrir forskráningu 15. Ágúst, og opnum þá fyrir nýskráningar ef eitthvað er laust.


Eins og eftirspurnin er núna þá getum við ekki bætt við okkur nýjum hjólhýsum og húsbílum fyrir næsta vetur. Möguleiki er á að bæta við tjaldvögnum og fellihýsum. A.T.H. erum eingöngu að geyma ferðavagna, tökum ekki við fólksbílum eða jeppum í geymslu.


Hægt er að byrja að koma með vagna sem eiga bókað pláss um miðjan ágúst.

 

Loka dagsetningar til að koma með vagna eru:

Tjaldvagnar og fellihýsi                 24.09.2023

Hjólhýsi og húsbílar                      01.10.2023



Ef af einhverjum ástæðum lokadagsetningar henta ekki þá þarf að hafa samband og semja um aðrar dagsetningar með fyrirvara.


Fjarlægja þarf gaskúta og rafgeyma úr ferðatækjum áður en þau fara inn. Getum ekki að kröfu eldvarnareftirlits geymt gaskúta og rafgeyma.

 

 

Ef á þarf að halda vegna geymslu er hægt að hafa samband á eftirfarandi hátt:
Ómar                                  857 6467/856 1848
Siggi Sig                             897 7117                                                                               
Anna Björg                         893 4145
Eða senda tölvupóst á    
s3geymsla@gmail.com

 

 



 
                                             

 



Nánari upplýsingar
 Stærð geymslu   3500 m2
 Upphitað  
 Leigutími   Frá miðjum september og fram í maí

Veðurspá